Skip to main content
27. júní 2017

Nýr vefur Háskóla Íslands opnaður

Nýr og gjörbreyttur vefur Háskóla Íslands var opnaður í dag, þriðjudaginn 27. júní, en vefsvæði skólans eru með þeim fjölsóttustu og efnismestu á Íslandi. Vefurinn nýi er öflug gátt inn í Háskóla Íslands þar sem skilvirkni er skipað í öndvegi.

Einfalt er að nálgast allar upplýsingar um Háskólann og þá fjölbreyttu þjónustu sem hann býður. Áhersla er því lögð á að leit sé skilvirk og styðji notendur hratt og örugglega, ekki síst við leit að námi og að upplýsingum um rannsóknir og aðra kjarnastarfsemi skólans. Leitarvél vefsins hefur því verið þróuð sérstaklega til að mæta kröfum notenda.

Vefurinn er afrakstur mikillar vinnu sem staðið hefur yfir í hátt á annað ár. Hún hófst með þarfagreiningu þar sem metin var sýn allra notendahópa á þau gögn sem vefurinn átti að innihalda og í framhaldi af því hófst hönnun og forritun sem lauk með sérhæfðum prófunum.

Vefurinn nýi er hannaður þannig að hann stillir sig sjálfvirkt af fyrir þau tæki sem birta hann og hentar vefurinn því jafnvel til skoðunar á borðtölvum, spjaldtölvum og í snjallsímum. Þetta er afar mikilvægt þar sem sífellt stærri hópur notenda styðst eingöngu við snjallsíma við að leita að upplýsingum, ekki síst um námsleiðir við skólann.

Vefurinn er knúinn með vefumsjónarkerfinu Drupal eins og fyrri vefir skólans og var forritun og þróun viðmótsins í höndum Reiknistofnunar Háskóla Íslands. Hugsmiðjan stýrði hins vegar grunnhönnun nýja vefsins.

Þótt vefurinn hafi verið opnaður í dag verður hann þróaður áfram og verður í mótun næstu vikur og mánuði. Ábendingar frá notendum um það sem betur má fara eru því afar vel þegnar. Einfalt er að senda inn skilaboð frá hverri einustu síðu vefsins um viðbætur og breytingar auk þess sem hægt er að senda ábendingar á efni@hi.is.