Skip to main content
9. janúar 2017

Ný og sérstök nálgun í kennslu í MBA-náminu í HÍ

""

Runólfur Smári Steinþórsson prófessor og Gylfi Magnússon dósent, báðir við Viðskiptafræðideild, voru nýverið á árlegri vinnustofu kennara í samkeppnishæfni sem haldin var í Harvard Business School í Boston. Vinnustofan er miðpunktur alþjóðlegs samstarfs á sviði samkeppnishæfni sem Michael E. Porter, prófessor við Harvard, og stofnun hans, Institute of Strategy and Competitiveness, leiðir. Á vinnustofunni var m.a. farið yfir fyrirkomulag kennslu í samkeppnishæfni á námskeiðum fyrir stjórnendur víða um heim.

Á vinnustofunni flutti Runólfur Smári innlegg um það hvernig kennslu í samkeppnishæfni er hagað í MBA-náminu í Háskóla Íslands, en á þessu skólaári var farin sú leið að flétta námsefnið inn í tvö námskeið, Stefnumótun og samkeppnishæfni sem Runólfur kennir og Rekstrarumhverfið sem Gylfi kennir. 

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hefur tekið þátt í samstarfsneti um kennslu og rannsóknir í samkeppnishæfni, sem stjórnað er frá stofnun Michaels E. Porters við Harvard Business School, frá árinu 2006. Nú hafa um 330 nemendur lokið námskeiðinu hérlendis. Fulltrúar Háskóla Íslands í þessu neti eru sem fyrr segir Runólfur Smári Steinþórsson og Gylfi Magnússon. Þeir hafa með reglulegum hætti gert grein fyrir þróuninni á Íslandi á þessu sviði og m.a. hefur Gylfi Magnússon verið með kynningu á hruni íslenska fjármálakerfisins á þessum vettvangi.

Runólfur Smári Steinþórsson, Michael E. Porter og Gylfi Magnússon á vinnustofunni í Boston á dögunum.
Runólfur Smári Steinþórsson, Michael E. Porter og Gylfi Magnússon á vinnustofunni í Boston á dögunum.