Ný námskeið á Icelandic Online

Ný námskeið á Icelandic Online

Þann 7. septemkber nk. verða þrjú ný námskeið á vefnum Icelandic Online, sjálfstýrðu vefnámskeiði, formlega opnuð. Þetta eru námskeið fyrir byrjendur og tvö framhaldsnámskeið.

Icelandic Online er sjálfstýrt vefnámskeið í íslensku sem öðru máli. Fyrsti hluti þess var formlega tekin í notkun árið 2004. Annað námskeiðið var tilbúið 2005. Icelandic Online hefur verið öllum opið án endurgjalds. Um 16.000 manns eru nú skráðir sem notendur og 600 heimsækja námskeiðin á degi hverjum.

Nýju námskeiðin eru unnin í samvinnu Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, Fjölmenningarseturs, Fjölmenningar ehf. og fimm háskólastofnana annars staðar á Norðurlöndum. Háskólinn í Wisconsin í Bandaríkjunum veitir aðgang að rafrænni íslensk-enskri orðabók, sem unnin var í sambandi við fyrsta hluta verkefnisins.
 
Námskeiðin eru bæði ætluð háskólanemum og öðrum sem áhuga hafa á að læra íslensku hér á landi og erlendis.

Norræna tungumálaáætlunin, Nordplus sprog, Háskóli Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa styrkt gerð nýju námskeiðanna þriggja.

Fjallað var um þessi tímamót í viðtali við Birnu Arnbjörnsdóttur (pdf), prófessor og verkefnastjóra vefsins, í Fréttablaðinu 28. ágúst 2010.


3.9.2010 14:01


deila á facebook
UI runs a Nordic super-...

A Nordic super-computer lab will be operated in Iceland in co-operation between the University of Iceland and three other Nordic institutions. Representatives of the University have finalised an agreement on running the lab for three years. The University of Iceland was among three Nordic...

Baldur Þórhallsson
Insignificant changes in...

“The objective of the study was to examine whether the economic collapse had changed the evaluation of interests regarding membership of the European Union among Icelandic political parties, and if they had changed their policies regarding membership in its aftermath”, says Baldur Þórhallsson,...

The Icelandic Economic...

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir Dean of the School of Engineering and Natural Science will present the findings from a research that was done on the Icelandic
economic collapse. The name of the research is "The Icelandic Economic Collapse – A systems Dynamics Perspective."

The meeting...

Vilhjálmur Árnasons
Are Icelanders An Immoral...

Vilhjálmur Árnason, professor of philosophy at the University of Iceland, as well as chair of the board of the Centre for Ethics at the university, was interviewed in the May issue of The Grapevine, alternative magazine issued in English.