Ný heimasíða RIKK

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) hefur nú opnað nýja og endurbætta heimasíðu á slóðinni https://rikk.hi.is/

RIKK er þverfagleg stofnun sem hefur það markmið að efla og samhæfa jafnréttisrannsóknir og rannsóknir í kvenna- og kynjafræðum, jafnframt sem stofnunin miðlar þekkingu á sviðinu með fyrirlestrum, ráðstefnum og útgáfu.Stofnunin leggur metnað sinn í að starfa með fræðimönnum af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. RIKK hefur margvísleg tengsl út fyrir skólann, jafnt innanlands sem á alþjóðavettvangi, og starfar í því samhengi sem fulltrúi Háskólans í heild. 

Nýja heimasíðan er uppfærð reglulega og er þar að finna mikið magn upplýsinga um kvenna-, kynja- og jafnréttisfræði. Sagt er frá rannsóknum, ráðstefnum og viðburðum á sviðinu bæði hérlendis og erlendis. Einnig eru auglýstir styrkir, störf og köll eftir fyrirlestrum á íslenskum og erlendum vettvangi. Á síðunni er jafnframt hægt að nálgast upplýsingar um starf RIKK gegnum tíðina, svo sem skýrslur sem stofnunin hefur látið gera og útgefnar bækur sem stofnunin hefur staðið að.

Sérstaklega er vakin athygli á haustdagskrá RIKK 2011, en þar er að finna jafnt hádegisfyrirlestra, opna fyrirlestra, málþing og alþjóðlegar ráðstefnur á sviði kvenna- og kynjafræða.

deila á facebook