Hinn 5. október síðastliðinn var Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra fært fyrsta eintak bókarinnar „Hinn launhelgi glæpur. Kynferðisbrot gegn börnum“. Bókin er framlag til umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skerfur til frekari skilnings á orsökum, eðli og afleiðingum kynferðislegrar misnotkunar á börnum.
Hrefna Ólafsdóttir lektor í klínískri félagsráðgjöf við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands sat í ritnefnd bókarinnar og skrifar þar einn kafla, en með henni í ritnefnd og meðhöfundar bókarinnar voru Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor við sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík, Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, og Geir Gunnlaugsson landlæknir auk ritstjórans, Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, dósents við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Í bókinni er á þriðja tug greina þar sem fjallað er um viðfangsefnið á forsendum ólíkra fræðigreina, svo sem lögfræði, afbrotafræði, félagsráðgjöf, sálfræði, læknisfræði, hjúkrunarfræði, uppeldisfræði, og félagsfræði. Auk þessa eru greinar eftir þolendur kynferðislegs ofbeldis þar sem þeir lýsa tilfinningum sínum og líðan og varpa persónulegu ljósi á fræðilega umfjöllun í bókinni.
Bókinni er skipt í þrjá hluta. Fyrst er fjallað um löggjöf og meðferð kynferðisbrota gegn börnum og er þar um að ræða viðamestu lögfræðilegu úttekt á þessum brotaflokki í íslenskum fræðiritum til þessa. Síðan er fjallað um þolendur kynferðislegrar misnotkunar, einkum hinar alvarlegu afleiðingar sem brotin hafa á heilsu þeirra og líðan. Þar er m.a. greinagerð um áður óbirtar íslenskar rannsóknir á afleiðingum og tíðni þeirra. Loks er fjallað um gerendur og gerð grein fyrir rannsóknum á ástæðum þess að einstaklingar misnota börn kynferðislega og möguleg úrræði til að sporna gegn slíkri háttsemi.
Útgefandi er Háskólaútgáfan
