Dagana 18.–22. júní nk. verður haldið námskeið á vegum Menntavísindasviðs sem ber heitið Physical activity and well-being in children and adolescents. Námskeiðið fer fram á Laugarvatni og er ætlað doktorsnemum á Norðurlöndunum sem vinna að rannsóknarverkefnum tengdum börnum og unglingum.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á viðhorf og reynslu barna og unglinga og hvernig þessir þættir endurspeglast í rannsóknum og rannsóknarsamstarfi. Markmið námskeiðsins er að kynna doktorsnemum það sem efst er á baugi í rannsóknum á börnum og ungu fólki. Lögð verður áhersla á fjóra mismunandi þætti tengdum líkamlegri hreifingu og heilsu:
a. Mynstur líkamlegrar hreyfingar og mælingar
b. Mælingar líkamsfitu og tengsl við heilsu og efnaskipti
c. Hreyfing, félagslegir þættir og andleg heilsa
d. Hreyfing og næring
Námskeiðið er samsett af fyrirlestrum, umræðum og smiðjum sem stýrt verður af rannsakendum frá Norðurlöndunum.
Námskeiðið er styrkt af NordForsk en það er stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og styrkir rannsóknarsamvinnu og er ráðgefandi um ýmsa samvinnu á sviði rannsókna á Norðurlöndunum.
Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á vef námskeiðsins: http://vefsetur.hi.is/nordforsk/
Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar nk.
