Nord Forsk námskeið fyrir doktorsnema
Menntavísindasvið hefur hlotið styrk frá Nord Forsk til að halda námskeið um sjónarmið barna fyrir norræna doktorsnema. Heiti námskeiðsins er „Millennium children: Their perspectives and experiences.” Markmið námskeiðisins er að kynna doktorsnemum nýjustu rannsóknir sem beinast að lífi og viðhorfi barna. Sjónum verður beint að hugmyndafræði, aðferðafræði og aðferðum. Áskoranir og álitamál í rannsóknum með börnum verða rædd og nemendur fá aðstoð við að tengja eigin rannsóknir við þessi sjónarmið. Sjónarhorn námskeiðsins verður annars vegar á réttindi og sjónarmið barna skv. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hins vegar á margmenningu og jafnan rétt allra barna. Námskeiðið fer fram á ensku.
Kennsla fer fram í staðlotu 8-12. febrúar með eftirfarandi fyrirkomulagi
(a)Fyrirlestrar virtra erlendra fræðimanna á sviðinu
(b) umræður og vinnustofur stýrt af Norrænum rannsakendum
(c) kynningar nema á eigin doktorsverkefnum þar sem færi gefst á umræðum og viðbrögðum
(d) heimsóknir í leikskóla.
Umsækjendur um námskeiðið verða valdir til þátttöku á grundvelli fræðilegrar greinar sem tengist doktorsverkefni þeirra. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 7-8 nemum frá hverju landi. Opnað verður fyrir umsóknir þann 15. september n.k.
Jóhanna Einarsdóttir prófessor við Menntavísindasvið hefur umsjón með námskeiðinu.
7.9.2010 11:28




