Nemendur HI í þroskunar- og sameindalíffræði skara fram úr í Evrópu

Framhaldsnemar HÍ í lífvísindum ná einstökum árangri í Evrópu

Rannsaka tímasetningu atburða í fósturþroska og staðsetningu erfðaupplýsinga í frumum

Tveir framhaldsnemar í lífvísindum við HÍ, Marteinn Þór Snæbjörnsson og Sara Sigurbjörnsdóttir náðu þeim einstæða árangri að komast inn í eitt besta framhaldsnám í sameindalíffræði í Evrópu við EMBL í Heidelberg. EMBL (European Molecular Biology Laboratory) er öflugasta rannsóknastofnun Evrópu á sviði sameindalíffræði og skyldra greina en Ísland tekur þátt í rekstri hennar. 

Við EMBL munu þau Marteinn og Sara leggja stund á rannsóknir á þroskunar- og sameindalíffræði við bestu mögulegar aðstæður. Um talsvert afrek er að ræða en á hverju ári sækja um 1000 einstaklingar um inngöngu í doktorsnámið hjá EMBL en aðeins um 50 komast inn á hverju ári (5%).  Nú þegar er einn íslenskur nemi, Bjarki Jóhannesson, við nám hjá stofnuninni. Árangurinn endurspeglar sterka stöðu lífvísinda hér á landi.

Marteinn Þór Snæbjörnsson, fæddur 1981, er lífefnafræðingur með BS gráðu frá HÍ og er í MS námi við Læknadeild undir leiðsögn Dr. Péturs Henry Petersen. Verkefnið, sem er styrkt af Rannsóknasjóði Vísinda og tækniráðs og minningarsjóði Helgu og Sigurliða, er unnið á Rannsóknarstofu í Taugalíffræði og við Lífvísindasetur Læknagarðs. Verkefni hans fjallar um flutning efna til og frá æðum og til  heilans. Doktorsverkefni hans við EMBL verður unnið á rannsóknarstofu Dr. Aulehla og snýst um hvernig mikilvægir atburðir í fósturþroskun eru tímasettir.

Þess má einnig geta að Marteinn hlaut einnig styrk frá DAAD (Deutscher Akademischer Austauschdienst) til að stunda nám í Þýskalandi.

Sara Sigurbjörnsdóttir, fædd 1984, er líffræðingur með BS gráðu frá HÍ og er í MS námi við Líf- og umhverfisvísindadeild undir leiðsögn Ólafs S. Andréssonar prófessors og Zophoníasar O. Jónssonar dósents. Rannsóknaverkefni hennar, stutt af Rannsóknasjóði H.Í., er unnið við Líffræðistofnun Háskólans og fjallar um lestur upplýsinga úr erfðaefni gersveppa en það getur skipt miklu máli í líftækni hversu vel  og hratt upplýsingarnar í erfðaefninu eru nýttar við framleiðslu próteina, helstu byggingareiningu líkamans.

Doktorsverkefni Söru við EMBL verður unnið á rannsóknarstofu Dr. Leptin og fjallar um staðsetningu erfðaupplýsinga innan frumunnar og hvaða hlutverki það gegnir í myndun flókinna frumuforma í öndunarkerfi ávaxtaflugunnar.

 


25.4.2010 22:56

deila á facebook
UI runs a Nordic super-...

A Nordic super-computer lab will be operated in Iceland in co-operation between the University of Iceland and three other Nordic institutions. Representatives of the University have finalised an agreement on running the lab for three years. The University of Iceland was among three Nordic...

Baldur Þórhallsson
Insignificant changes in...

“The objective of the study was to examine whether the economic collapse had changed the evaluation of interests regarding membership of the European Union among Icelandic political parties, and if they had changed their policies regarding membership in its aftermath”, says Baldur Þórhallsson,...

The Icelandic Economic...

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir Dean of the School of Engineering and Natural Science will present the findings from a research that was done on the Icelandic
economic collapse. The name of the research is "The Icelandic Economic Collapse – A systems Dynamics Perspective."

The meeting...

Vilhjálmur Árnasons
Are Icelanders An Immoral...

Vilhjálmur Árnason, professor of philosophy at the University of Iceland, as well as chair of the board of the Centre for Ethics at the university, was interviewed in the May issue of The Grapevine, alternative magazine issued in English.