Iwate University í Japan býður einum eða tveimur nemendum Háskóla Íslands upp á námskeiðið Kizuna (Human bond), um náttúruhamfarirnar sem áttu sér stað í Japan fyrr á þessu ári. Námskeiðið er frá 26. febrúar til 3. mars 2012.
Iwate University greiðir fyrir námskeiðið, mat og húsnæði. Þátttakendur fá einnig hluta ferðakostnaðar greiddan, það er frá Tokyo til Morioka. Þátttakendur þurfa sjálfir að greiða fyrir fargjald til Japan og heim. Nánari upplýsingar hér.
Umsóknum skal skilað til Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands, fyrir föstudaginn 6. janúar.
Umsóknargögn:
- Umsókn sem nálgast má með því að smella hér.
- Stutt ritgerð (hálf til ein blaðsíða) um hvernig námskeiðið getur nýst umsækjanda
- Einkunnir (fást á Þjónustuborði)
Öllum skráðum stúdentum Háskóla Íslands er velkomið að sækja um. Umsækjendur þurfa að vera með gott vald á japönsku og/eða ensku.
Umsækjendum er fyrst raðað eftir gæðum og efnistökum ritgerða, síðan einkunnum.
