Náttúran verðlögð í Heiðmerkurgöngu

„Fólk geri sér almennt góða grein fyrir mikilvægi náttúrunnar fyrir afkomu okkar þó einungis lítill hluti þjónustu náttúrunnar sé verðlagður. Skortur á verði þýðir auðvitað ekki að náttúran sé verðlaus, einungis að markaðir bregðast þegar kemur að verðlagningu margra náttúrugæða,“ segir Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Hagfræðideild Háskóla Íslands. Hann leiðir á morgun, laugardaginn 29. október, göngu um Heiðmörk og ræðir um verðmæti náttúrunnar.

Gangan er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands á aldarafmælisári skólans. Gengið hefur verið um höfuðborgarsvæðið og nágrenni undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ og þar blandast saman reynsla og þekking leiðsögumanna Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna háskólans.

„Verðlagning náttúrugæða, sem ekki eru verðlögð á mörkuðum, hefur verið viðfangsefni hagfærðinga í áratugi. Ég mun fjalla um aðferðirnar sem hafa verið þróaðar til að verðleggja náttúrugæði, forsendur aðferðanna og skynemi þess að verðleggja náttúruna. Í þessu samhengi mun ég sérstaklega fjalla um umfangsmikla rannsókn á verðmæti Heiðmerkur sem nú stendur yfir,“ segir Daði Már enn fremur.

Sem fyrr segir er gangan á morgun, laugardag, og hefst hún við Elliðavatnsbæinn kl. 14:00. Leiðarvísi að Elliðavatnsbænum má finna á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands um Heiðmörk. Ókeypis er í gönguna og hún er öllum opin.

Ítarlegra viðtal við Daða Má um gönguna má finna á aldarafmælisvef Háskóla Íslands.

deila á facebook