Dr. Elina Vuola, prófessor við Háskólann í Helsinki, kennir námskeið við Háskóla Íslands um áhrif trúarbragða á menningu Rómönsku Ameríku, vikuna 23. til 27. maí í stofu 222 í Aðalbygginu Háskólans. Námskeiðið er ætlað nemendum í guðfræði og trúarbragðafræðum, spænsku og kynjafræðum. Námsmat byggir á 100% mætingaskyldu og skil á verkefni. Námskeiðið er metið til tveggja eininga.
Ásdís Guðmundsdóttir, kennslustjóri við Hugvísindasvið, tekur við skráningum í námskeiðið fyrir 15. maí næstkomandi. Netfang hennar er asdisg@hi.is.
