Námskeið í Nordic Centre í Shanghai á vorönn 2012

Nordic Centre at Fudan University í Shanghai stendur fyrir námskeiðinu “Chinese Politics in a Globalized World” á vorönn 2012 (27. febrúar – 25. júní 2012).

Námskeiðið veitir allt að 30 ECTS-einingar og fæst metið inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun, ætlað nemendum í stjórnmálafræði og félagsfræði.

Þátttökugjald er 2.500 evrur og er þar innifalið námskeiðgjald, skipulagðarferðir á meðan á námskeiðinu stendur og aðstaða í Nordic Centre.

Námskeiðið skiptist í þrennt:

•    Chinese Developments in a Globalized World
•    Chinese Politics
•    Chinese Culture and Language

Frekari upplýsingar um námskeiðin, húsnæði ofl. má finna á heimasíðunni http://www.nordiccentre.org/ og á http://www.uib.no/sampol/ressurser/chinese-politics-in-a-globalized-world

Umsóknarfrestur er 31. október 2011.

deila á facebook