Móttaka nýrra nemenda í Stjórnmálafræðideild

Stjórnmálafræðideild bauð nýja nemendur í grunn- og framhaldsnámi hjartanlega velkomna til náms við deildina á kynningafundum þann 23. ágúst með forseta sviðsins, starfsfólki deildarinnar, kennurum og eldri nemendum. 

Senn líður að fyrstu skóladögum. Það eru mikil viðbrigði að hefja nám við háskóla og mikilvægt að nýnemar kynnist innbyrðis ekki síður en nýju umhverfi. Góður námsárangur næst með ástundun námsins, góðri kennslu, stuðningi starfsfólks sviðs og síðast en ekki síst stuðningi nemenda hver við annan.

Kennsla hefst mánudaginn 29. ágúst samkvæmt stundaskrá. Stundaskrár ertu birtar á vefsíðu deildar.

Bækur

Bóksala stúdenta á Háskólatorgi gefur út bókalista fyrir námið í samstarfi við Félagsvísindasvið. Bókalisti fyrir haustið 2011 verður birtur á vefsíðu bóksölunnar, www.boksala.is, í byrjun ágúst. Fylgist jafnframt með upplýsingum um lesefni frá kennurum í upphafi námskeiða.

Lesaðstaða       

Nemendum er bent á ágæta lesaðstöðu í Þjóðarbókhlöðu en þar er einnig góður aðgangur að tölvum. Einnig má benda á lesaðstöðu fyrir grunn- og framhaldsnema í Gimli, á Háskólatorgi og í Odda.

Úthlutun notendanafna og lykilorða fyrir tölvukerfi 

Nemendur við Háskóla Íslands þurfa að hafa notandanafn og lykilorð. Þetta er frumskilyrði til þess að nemendur geti nálgast upplýsingar um námsframvindu, haft samskipti við kennara og nýtt sér tölvuþjónustu skólans. Notandanafn er jafnframt tölvupóstfang hjá Háskólanum (notandanafn@hi.is). Þegar umsækjendur hafa greitt skrásetningargjaldið hjá HÍ geta þeir sótt notandanafn á slóðina: www.nynemar.hi.is

Tölvunet 

Stúdentar fá aðgang að tölvuverum og tölvukerfi skólans, þar á meðal Uglu, innra neti og upplýsingamiðli skólans. Gert er ráð fyrir því að stúdentar lesi tölvupóst reglulega og því eru flestar tilkynningar sendar á því formi. Á síðu www.rhi.hi.is eru upplýsingar um tengingu við háskólanetið og þráðlausa tengingu. Þjónustuborð Reiknistofnunar HÍ er á Háskólatorgi, síminn 525 4222.

Tölvuver 

Gert er ráð fyrir að nemendur eigi fartölvur. Á Félagsvísindasviði hafa nemendur aðgang að tölvuverum í Odda og í Gimli.

Prentkvóti 

Til að nemendur geti prentað út á prenturum skólans þarf prentkvóta. Hann er seldur hjá Nemendaskrá á Háskólatorgi.

Kennsluskrá 

Í rafrænni kennsluskrá á slóðinni www.kennsluskra.hi.is eru ítarlegar upplýsingar um námsleiðir og námskeið. Kennsluskrá er leiðarljós nemenda á meðan á námi stendur. Þar er einnig að finna ýmsar lykilupplýsingar um skólaárið, skráningu, gjöld, próf og margt fleira sem nemendur þurfa að vita þegar þeir hefja nám við skólann. Sérstaklega skal bent á að við val á námskeiðum fylgir nemandi að öðru jöfnu þeirri kennsluskrá sem í gildi var við innritun, út námstímann.

Frekari upplýsingar fyrir nýja nemendur er að finna á nýnemasíðu HÍ.

deila á facebook