Skip to main content
12. maí 2016

Minningarathöfn um Alyson J.K. Bailes

Minningarathöfn um Alyson J.K. Bailes verður haldin þriðjudaginn 31. maí nk. kl. 15:00 á Litla -Torgi.

Alyson lést í Skotlandi föstudaginn 29. apríl sl. Hún starfaði í 30 ár í bresku utanríkisþjónustunni og gegndi þar fjölda trúnaðarstarfa, síðast starfi sendiherra í Helsinki. Alyson var forstöðumaður Alþjóðafriðarrannsóknastofnunarinnar (SIPRI) í Stokkhólmi á árunum 2002-2007 þegar hún tók við starfi aðjúnkts við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hún var einnig gestaprófessor við College of Europe í Brugge 2010-2015. 

Til að minnast Alyson og framlags hennar til fræðanna hafa Stjórnmálafræðideild HÍ, Alþjóðamálastofnun HÍ og breska sendiráðið í Reykjavík ákveðið að veita árlega verðlaun í hennar nafni fyrir framúrskarandi BA- eða MA-ritgerð á sviðum öryggismála, Norðurslóðarannsókna eða utanríkisstefnu Norðurlandanna. 

Alyson var fædd í Manchester í Bretlandi 6. apríl árið 1949. Hún stundaði nám við The Belvedere School í Liverpool og Somerville College í Oxford háskóla þaðan sem hún útskrifaðist með BA-próf í nútímasögu með ágætiseinkunn árið 1969 og MA-próf árið 1971. Alyson var gerð að heiðursfélaga við Somerville College árið 2001. Hún lætur eftir sig móður, systur og bróður í Bretlandi

Alyson J.K. Bailes
Alyson J.K. Bailes