Skip to main content
21. ágúst 2017

Mikill kraftur í þverfræðilegri samvinnu

Hundrað og tuttugu nemendur við Heilbrigðisvísindasvið munu taka þátt í nýju þverfræðilegu námskeiði í haust. Vinnustofa fyrir leiðbeinendur í námskeiðinu fór fram föstudaginn 18. ágúst.

Nýtt námskeið um þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisvísindum hefst þann 1. september.  Námskeiðið er fyrir nemendur sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum í námi á Heilbrigðisvísindasviði. Þar verður hugmyndafræði þverfræðilegrar samvinnu höfð að leiðarljósi og nemendum veitt tækifæri til þess að æfa fagmennsku, teymisvinnu og samskipti. Í námskeiðinu verður unnið í þverfræðilegum hópum að sameiginlegu verkefni. Verkefnin verða æfingar í klínískum tilfellum, þróun nýsköpunarhugmyndar eða lýðheilsuáætlun. 

Vinnustofa fyrir leiðbeinendur í námskeiðinu fór fram í Veröld - húsi Vigdísar föstudaginn 18. ágúst. Dr. Þröstur Björgvinsson, klínískur sálfræðingur og dósent við Harvard Medical School, fjallaði þar um mikilvægi þverfræðilegrar samvinnu og miðlaði af reynslu sinni frá McLean-spítala í Massachusetts. Dr. Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítala, fjallaði enn fremur um árangursrík samskipti í þverfaglegri teymisvinnu. Leiðbeinendurnir unnu einnig að undirbúningi námskeiðsins í umræðuhópum. 

25 leiðbeinendur af ýmsum sviðum heilbrigðisvísinda komu á vinnustofuna og munu sjá um kennslu í námskeiðinu. Þar á meðal eru sérfræðingar í nýsköpun, geislafræðingar, hjúkrunarfræðingar, lyfjafræðingar, læknar, næringarfræðingar og sálfræðingar, bæði starfandi innan Heilbrigðisvísindasviðs og utan. Umsjónarkennari námskeiðsins er dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild.

Námskeiðið hefst sem fyrr segir 1. september og lýkur með kynningu á verkefnum hópanna þann 13. október.

Dr. Þröstur Björgvinsson, klínískur sálfræðingur og dósent við Harvard Medical School, og dr. Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítala.
Dr. Þröstur Björgvinsson
Dr. Ásta Bjarnadóttir
Dr. Ásta Bjarnadóttir og fyrirlestrargestir