Á þriðja hundrað manns hlýddi á erindi bandaríska stjórnmálafræðingsins dr. Roberts Davids Putnam, prófessors við John F. Kennedy School of Government við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, í Hátíðasal Háskóla Íslands í hádeginu dag.
Dr. Putnam var öndvegisfyrirlesari Félagsvísindasviðs á aldarafmæli Háskóla Íslands og erindi hans markaði upphaf afmælismánaðar sviðsins þar sem áhugaverðir viðburðir verða í boði nánast hvern einasta dag mánaðarins.
Dr. Putnam er heimsþekktur stjórnmálafræðingur sem gegndi um tíma stöðu forseta John F. Kennedy School of Government við Harvard-háskóla. Hann hefur gefið út fjölda bóka, þar á meðal bækurnar „Making Democracy Work“ og „Bowling Alone: The Collapse and Revival of American Community“ sem eru meðal þeirra rita í félagsvísindum sem mest hefur verið vitnað til. Dr. Putnam hefur enn fremur verið ráðgjafi þjóðarleiðtoga á borð við Bill og Hillary Clinton, Barack Obama, George W. Bush, Tony Blair, Gordon Brown og Nicolas Sarkozy.
Í erindi sínu, sem bar titilinn „Challenges to community in the contemporary world: Social capital, diversity, and inequality“, fjallaði dr. Putnam um hugtakið félagsauð sem hann notar í rannsóknum sínum og snýst um tengsl okkar við vini, fjölskyldu og samfélag svo eitthvað sé nefnt. Fór hann m.a. yfir þróun félagsauðs á síðustu hálfa öldina í Bandaríkjunum og benti á að félagsleg tengsl þar í landi hefðu flest verið á niðurleið á þeim tíma. Það birtist meðal annars í minni þátttöku fólks í hvers kyns félagsstarfi. Við því þyrfti að bregðast.
Myndir frá erindi dr. Putnams eru hér til hægri.
Dr. Putnam er fimmti öndvegisfyrirlesarinn sem heimsækir Háskóla Íslands á afmælisárinu. Enn er þó von á einum, dr. Henry Petroski, prófessor í byggingarverkfræði og sagnfræði við Duke-háskólann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Hann flytur erindi á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs 29. október.
