Skip to main content
2. júní 2016

Margrét Helga hlýtur Hvatningarverðlaun VTR

""

Dr. Margrét Helga Ögmundsdóttir, rannsóknasérfræðingur við Lífvísindasetur Háskóla Íslands, hlýtur Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2016. Frá þessu var greint á Rannsóknaþingi Rannís sem fram fór á Grand Hótel í morgun. 

Forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, Sigurður Ingi Jóhannsson, afhenti Margréti verðlaunin. Í ræðu forsætisráðherra kom fram að Margrét væri framúrskarandi ungur vísindamaður sem hefði sýnt skýran metnað til að láta gott af sér leiða í íslensku rannsóknasamfélagi og að hún væri verðugur handhafi Hvatningarverðlaunanna.

Um verðlaunahafann

Margrét er fædd árið 1981 og lauk prófi í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Árið 2006 hóf hún doktorsnám við Oxford-háskóla í Bretlandi og lauk því árið 2010. Margrét hlaut nokkur verðlaun á meðan hún dvaldi við Oxford, þar á meðal The Newton Abraham Studentship, Overseas Research Award og The Hugh Pilkington Scholarship.

Að loknu doktorsnámi hóf Margrét störf á rannsóknastofu Eiríks Steingrímssonar prófessors við Lífvísindasetur Háskóla Íslands sem nýdoktor. Þar vann hún m.a. að greiningu á byggingu og starfsemi próteina sem gegna lykilhlutverki í genastjórnun í litfrumum og sortuæxlum auk greiningar á hlutverki tiltekinna gena í krabbameinum í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. Margrét hefur unnið að greiningu erfðabreytileika sem tengjast krabbameinum og skoðað áhrif þeirra á hegðun og virkni krabbameinsfruma.

Auk rannsókna og kennslustarfa er Margrét áhugasöm um umhverfi vísinda á Íslandi og hefur tekið þátt í að breyta því. Hún hefur verið formaður Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Íslandi (SKÍ) undanfarin ár og hefur staðið fyrir ýmsum nýjungum í því starfi. Hún hefur einnig unnið að ýmsum málum varðandi rannsóknastyrki á Íslandi og tekið þátt í starfsemi og stefnumótun Lífvísindaseturs Háskóla Íslands. 

Um Hvatningarverðlaunin

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin eru nú þrjár milljónir króna og hafa verið veitt frá árinu 1987, í fyrsta sinn á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands. Markmiðið með verðlaununum er að hvetja vísindamenn til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindamanna. 

Háskóli Íslands óskar Margréti til hamingju með verðlaunin.

Margrét Helga Ögmundsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson
Margrét Helga Ögmundsdóttir
Margrét Helga Ögmundsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson
Margrét Helga Ögmundsdóttir