Lokaverkefni við GEST vekur athygli

Fjallað er um lokaverkefni nýútskrifaðs nemanda við Alþjóðlegan jafnréttisskóla (GEST) við Háskóla Íslands í nýlegu fréttabréfi einna af undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna. Stofnunin sinnir mannúðarstörfum meðal palestínskra flóttamanna í Mið-Austurlöndum.

Palestínumaðurinn Khaled Mansour vinnur á skrifstofu UNRWA-stofnunarinnar (The United Nations Relief and Works Agency for Palestine Refugees in the Near East) á Vesturbakkanum. Greint er frá lokaverkefni hans við Alþjóðlegan jafnréttisskóla í fréttabréfi stofnunarinnar um jafnréttismál.

Í lokaverkefni sínu bendir Mansour á að konur hafi hingað til haft lítil völd í flóttamannabúðum á Vesturbakkanum og það hafi haft neikvæð áhrif á stöðu þeirra. Rekur hann valdaleysi kvenna m.a. til óljósrar uppbyggingar stjórnkerfis í búðunum þar sem völdum sé útdeilt til valinna einstaklinga í stað þess að efnt sé til kosninga um stjórn búðanna. Leggur Mansour m.a. fram tillögur til þess að fjölga konum í stjórnum búðanna.

Vekja þurfi athygli ráðamanna á svæðinu á mikilvægi sjónarmiða kvenna við stjórnun í flóttamannabúðum. Jafnframt verði að hvetja konur til þess að bjóða sig fram til ábyrgðarstarfa og gera vinnuumhverfið vinsamlegra, m.a. með sérstökum siðareglum og bættri aðstöðu.

Mansour var í hópi sjö nemenda frá þróunarríkjum og átakasvæðum sem luku 20 vikna námskeiði við Alþjóðlegan jafnréttisskóla í janúar. Það var þriðji hópurinn sem lauk námi frá skólanum en honum var komið á fót fyrir þremur árum. Markmið Alþjóðlegs jafnréttisskóla er að þjálfa nemendur til þess að takast á við jafnréttismál á víðum grundvelli í heimalandi sínu. Námið er þverfaglegt og rekið við Hugvísindasvið Hákóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið.

deila á facebook