Skip to main content
24. mars 2015

Lífríki sjávar og umhverfisógnir þema Grænna daga

Grænir dagar verða haldnir dagana 25. – 27. mars næst komandi og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um ýmis aðkallandi umhverfismál.Grænir dagar eru röð viðburða innan Háskóla Íslands skipulagðir af GAIA, félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði.  Þemað í ár er sjórinn og þær umhverfisógnir sem að honum steðja en ábyrgð, skilningur og góð umgengni gagnvart hafinu og lífríki þess er eitthvað sem skiptir okkur á Íslandi miklu máli. Meðal atburða eru fyrirlestrar, pallborðsumræður, bíósýning og bar-svar.

Á dagskránni er til dæmis sýning myndarinnar Mission Blue sem fram fer klukkan 16 miðvikudaginn 25. mars í Norræna húsinu. Í myndinni er sjávarlíffræðingnum Sylviu Earle og samtökum hennar fylgt eftir en þau berjast fyrir bættri umgengni við sjóinn. Þetta er fyrsta og eina tækifærið til að sjá myndina á Íslandi þar sem Netflix á sýningarrétt að myndinni. Föstudaginn 27. mars klukkan hálf tólf í Stúdentakjallaranum koma svo fulltrúar frá atvinnulífinu, náttúruverndarsamtökum og opinberir starfsmenn saman í pallborði til að ræða um tengsl loftslagsbreytinga og súrnun sjávar. Einnig eru á dagskrá fjöldi áhugaverðra fyrirlestra, listasýning frá nemendum Listaháskóla Íslands, hreinsun strandar með Bláa Hernum og bar-svar með sjávarþema.

Allir eru hjartanlega velkomnir sem áhuga hafa á að kynna sér málefni sjávarins. Öll dagskráin fer fram á ensku.

Nánari upplýsingar um viðburðina má nálgast á Facebook-síðu Grænna daga, Green Days - Iceland. 

Þemað í ár er sjórinn og þær umhverfisógnir sem að honum steðja en ábyrgð, skilningur og góð umgengni gagnvart hafinu og lífríki þess er eitthvað sem skiptir okkur á Íslandi miklu máli.
Dagskráin er á ensku
Þemað í ár er sjórinn og þær umhverfisógnir sem að honum steðja en ábyrgð, skilningur og góð umgengni gagnvart hafinu og lífríki þess er eitthvað sem skiptir okkur á Íslandi miklu máli.
Dagskráin er á ensku