Líflegar umræður um olíuleit

Líflegar umræður sköpuðust á málstofu Viðskiptafræðideildar í dag þegar þeir Þórarinn Sveinn Arnarson, Þórður Reynisson og Halldór Þorkelsson fjölluðu um olíuleit á Drekasvæðinu út frá ólíkum sjónarhornum.

Þórarinn Sveinn Arnarson er haffræðingur á Orkustofnun og fjallaði hann um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á jarðlögum á Drekasvæðinu og líkunum á að olía finnist þar. Drekasvæðið á margt sameiginlegt með olíuríkum svæðum við vesturströnd Noregs og því töluverðar líkur á að olía finnist þar.

Þórður Reynisson er lögfræðingur á orkumálaskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og fór hann yfir hlutverk stjórvalda og hvað hefur verið gert í aðdraganda olíuútboðsins. Þórður sagði meðal annars frá því að farið hefði verið yfir galla á lagaumhverfinu og ný lög sem tóku gildi 8. september síðastliðinn hefðu tekið á þeim.

Halldór Þorkelsson sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar PwC ræddi um Drekasvæðið í alþjóðlegu samhengi. Halldór ræddi meðal annars um spár um aukna eftirspurn eftir olíu í heiminum á næstu áratugum og tækifæri sem í því felast. Hann lagði áherslu á að  ferlið við olíuútboð yrði að vera sem skilvirkast og hvaða þætti þyrfti að leggja áherslu á til að auka líkur á að ferlið verði sem árangursríkast. Halldór benti á að ákjósanlegt gæti verið að stofna ríkisolíufélag til að auka trúverðugleika á ferlinu og auka líkurnar á að allir hagsmunaaðilar horfi á verkefnið til langs tíma.

Glærur þeirra Þórarins, Þórðar og Halldórs, má finna á vef Viðskiptafræðideildar.

 

Umfjöllun í fréttum Stöðvar 2 og umfjöllun í kvöldfréttum RÚV.

deila á facebook