Skip to main content
7. desember 2016

Landnám Gunnars Karlssonar

""

Út er komin bókin Landnám Íslands eftir Gunnar Karlsson, prófessor emeritus í sagnfræði. Bókin er annað bindið í ritröð Gunnars, Handbók í íslenskri miðaldasögu. Fyrsta bindið, Inngangur að miðöldum, kom út árið 2007, og hið þriðja, Lífsbjörg Íslendinga frá 10. öld til 16. aldar, árið 2009.

Í bókinni er fjallað um efnið frá sem flestum sjónarmiðum. Í upphafi er sýnt fram á að helstu ritheimildir um landnámið, Íslendingabók og Landnámabók, séu óhjákvæmilega nokkuð ótraustar og því verði að reisa fræðilega sögu þess á fornleifum eins og kostur er á. Þó að vitnisburði fornleifa beri ekki nákvæmlega saman við ritheimildir segja þær í meginatriðum sömu sögu um tímasetningu landnámsins.

Í öðrum hluta er fjallað um ritheimildir og í þriðja hluta er fengist við meginatriði landnámssögunnar og leiddar líkur að niðurstöðum um uppruna landnemanna, leiðir þeirra til að nema land og bjargræði nýbúanna fyrstu árin. Þá er forsaga landnámsins könnuð í fjórða hluta og loks er landnámssagan sett í samhengi við leið mannsins til Færeyja, Grænlands og meginlands Norður-Ameríku, við víkingaferðir norrænna manna og sameiningu Noregs og loks við minningu landnámsins í bóklegum arfi þjóðarinnar og daglegri samræðu hennar allt til síðustu ára.

Bókarkápa og Gunnar Karlsson
Bókarkápa og Gunnar Karlsson