Lagadeild Háskóla Íslands, ein af fjórum elstu deildum skólans, fagnar aldarafmæli skólans með opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 27. október. Þar verður lögð áhersla á að kynna starfsemi deildarinnar fyrir almenningi.
Dagskrá Lagadeildar stendur frá 12:00-16:00 og er hún einkar fjölbreytt. Að lokinni hádegishressingu í anddyri Lögbergs mun Róbert R. Spanó, forseti Lagadeildar, flytja stutt ávarp og opna upptökur af námskeiðinu Inngangur að lögfræði á vef deildarinnar. Með upptökunum er ætlunin að gefa almenningi innsýn í grunngreinar lögfræðinnar sem varða flesta þætti mannlífs.
Á milli kl. 12:40 og 14:00 stendur Úlfljótur, tímarit laganema, fyrir hátíðarmálþingi þar sem Garðar Gíslason hæstaréttardómari, Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við Lagadeild HÍ, og Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, taka til máls. Garðar ræðir réttarheimspeki, Hafsteinn Þór um nýja tillögu að stjórnarskrá og Davíð Þór um lög og siðferði í tengslum við hrunið.
Kl. 14:30 er svo komið að sýndarréttarhöldum laganema í Lögbergsdómi, æfingasal nemanna. Þar verður tekist á um það hvenær ummæli á Facebook fara yfir mörk hins leyfilega og teljast refsiverð. Þarna verður því hægt að sjá hvernig mál eru flutt fyrir dómstólum í raunveruleikanum.
