Kynningarfundur fyrir nýnema Hugvísindasviðs

Kynningarfundir fyrir nýnema Hugvísindasviðs

Nýnemum Hugvísindasviðs er boðið til kynningarfundar á Háskólatorgi, stofu 105, miðvikudaginn 24. ágúst næstkomandi kl. 16:00. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ávarpar fundinn og Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísindasviðs, og forsetar deilda kynna skólann og námið.

Að loknum kynningarfundi á Háskólatorgi kl. 17:00 verða sérstakir kynningarfundir fyrir hverja námsgrein þar sem greint verður frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám í viðkomandi greinum.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrám 29. ágúst. Á vef Háskóla Íslands og vef Hugvísindasviðs, www.hug.hi.is, er að finna gagnlegar upplýsingar um námið og skólann.

Kynningarfundir í námsgreinum 24. ágúst kl. 17:00

Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda:

  • Danska. Nýi Garður Stofa 201

  • Enska. Háskólatorg Stofa 105

  • Franska. Aðalbygging Stofa 231

  • Gríska og latína. Aðalbygging Stofa 230

  • Ítalska. Aðalbygging Stofa 218

  • Japanska. Árnagarður Stofa 304

  • Kínverska. Aðalbygging Stofa 222

  • Norska. Nýi Garður Stofa 301

  • Rússneska. Lögberg Stofa 204

  • Spænska. Aðalbygging Stofa 207

  • Sænska. Nýi Garður Stofa 301

  • Þýska. Lögberg Stofa 205

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild:

  • Guðfræði og trúarbragðafræði. Aðalbygging Stofa 229

Íslensku- og menningardeild:

  • Almenn bókmenntafræði. Háskólatorg Stofa 102

  • Almenn málvísindi. Árnagarður Stofa 303

  • Íslenska. Árnagarður Stofa 301

  • Kvikmyndafræði. Háskólatorg Stofa 102

  • Listfræði. Árnagarður Stofa 201

  • Táknmálsfræði. Árnagarður Stofa 422

Sagnfræði- og heimspekideild:

  • Fornleifafræði. Árnagarður Stofa 423

  • Heimspeki. Háskólatorg Stofa 101

  • Sagnfræði Háskólatorg Stofa 104

deila á facebook