Skip to main content
21. janúar 2016

Kynning á störfum hjúkrunarfræðinga

Fjórða árs nemar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands bjóða til kynningar á ýmsum starfssviðum hjúkrunarfræðinga föstudaginn 22. janúar kl. 11.00-14.00 í Eirbergi. 

Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verða kynntar, til dæmis: Verkjateymi Landspítala, hjúkrun og hjálparstarf, hjúkrun á vökudeild, Frú Ragnheiður, skaðaminnkunnarverkefni Rauða krossins, aðstoð við flóttafólk, heimafæðingar, lífsstílsmóttaka og hjúkrunarnemafélagið Hlíf.

Glæsileg kaffisala nemenda verður frá kl.11.45-13.00 og rennur ágóðinn til styrktar félagsmiðstöð aldraðra í Hæðargarði.

Hér má sjá myndir frá viðburðinum í fyrra.

Hjúkrunarfræðinemar við Háskóla Íslands