Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.
Háskólarnir fjórir undirrituðu á síðasta ári samning um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum við skólana. Samningurinn hefur þegar tekið gildi og munu nemendur geta skráð sig í námskeið við annan opinberan háskóla án þess að greiða nein viðbótargjöld og án þess að móttökuskólinn setji almenn takmörk á fjölda eininga sem gestanemandi tekur með þessum hætti.
Samstarfið og þeir möguleikar sem nemendum við opinberu háskólanna standa til boða verða kynntir í Háskólabíói á Háskóladaginn og auk þess munu skólarnir fjórir kynna námsframboð sitt sérstaklega. Háskólinn á Akureyri, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands verða í Háskólabíói en Háskóli Íslands verður með námskynningu og fjölbreytta dagskrá í Aðalbyggingu, Háskólatorgi og Öskju – náttúrufræðahúsi.
Nóg verður um að vera á Háskóladaginn á háskólasvæðinu, ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnat Vísindasmiðju Háskóla Íslands í Háskólabíói kl. 13 og í einum sýningarsal bíósins verður hópur efnafræðinema, hið víðfræga Sprengjugengi, með tvær opnar sýningar. Þá verður boðið upp á Vísindabíó í einum af sölum Háskólabíós þar sem vísindaþættir Háskóla Íslands, Fjársjóður framtíðar, verða sýndir. Ókeypis er á alla viðburðina og allir eru boðnir velkomnir.
Þess má geta að Listaháskóli Íslands, Keilir og norrænir háskólar kynna sitt námsframboð einnig í Háskólabíói og Háskólinn á Bifröst verður í Norræna húsinu. Háskólinn í Reykjavík verður svo með kynningu á sínum námsleiðum í Nauthólsvík en Listaháskóli Íslands verður einnig þar samhliða því að vera í Háskólabíói.
