Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi

Guðfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan Þjóðkirkjunnar og Guðrún Ebba Ólafsdóttir bjóða til málþings og námskeiðs með Rev. Dr. Marie M. Fortune frá FaithTrust Institute í Bandaríkjunum.

Málþing um kynferðislega misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi

Málþingið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu háskólans þriðjudaginn 18. október, kl. 10-13. Yfirskrift málþingsins er ,,Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi“. Málþingið er ókeypis og öllum opið.

Aðalfyrirlesari:

- Rev. Dr. Marie M. Fortune

Stutt erindi flytja:

- Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur við Landspítala.
- Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.
- Sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur og lektor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.
- Guðrún Ebba Ólafsdóttir kennari og stjórnarmaður Blátt áfram og Drekaslóðar.
- Brynhildur Flóvenz lögfræðingur og dósent við Lagadeild HÍ.
- Stjórnandi málþings: Elín Hirst, fréttamaður.

Námskeið um kynferðislega misnotkun og rétt viðbrögð í samhengi kirkju og trúfélaga 

Námskeiðið verður haldið í Neskirkju miðvikudaginn 19. október 2011 kl. 8:30-17. Yfirskrif námskeiðsins er ,,Kynferðisleg misnotkun og rétt viðbrögð í samhengi kirkju og trúfélaga."

Dagskrá námskeiðsins:

- 8:30-9:00        Afgreiðsla námsgagna.
- 9:00-11:30      Raising awareness – sexual misconduct and abuse within religious context/church.
- 11:30-12:30    Hádegisverður.
- 12:30-14:30    Framework for just response.
- 14:30-15:00    Kaffi
- 15:00-17:00    Professional Boundaries in Church Work

Fyrirlesari námskeiðsins er Rev. Dr. Marie M. Fortune. Þá mun Vilborg Guðbjörg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og meðlimur Fagráðs kirkjunnar kynna drög að leiðbeiningum um vinnu með fólki í viðkvæmum aðstæðum. Stjórnandi námskeiðsins: Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson formaður Fagráðs kirkjunnar.

Skráning á námskeiðið er hjá Kristínu Arnardóttur á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 5284000. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 14. október.

Rev. Dr. Marie M. Fortune – kynning

Rev. Dr. Marie M. Fortune  er einn virtasti fagaðili á sviði fræðslu- og forvarnarmála um kynferðislegt ofbeldi í Bandaríkjum Norður Ameríku. Hún er guðfræðingur, vígður prestur í The United Church of Christ, auk þess að vera stofnandi og veita forstöðu FaithTrust Institute í Seattle (1977). FaithTrust stofnunin býður upp á þjálfun, ráðgjöf, kennslu og fræðsluefni í því markmiði að binda endi á kynferðislegt ofbeldi og heimilisofbeldi og hefur Fortune sinnt þessum verkefnum í fjölda landa, með mismunandi menningu og trúarbrögð, auk heimalandsins. Markmiðið með komu Rev. Dr. Marie M. Fortune til Íslands er að gera sem flestum kleift að njóta þekkingar hennar og reynslu.

Rev. Dr. Marie M. Fortune gaf út bókina Sexual Violence. The Unmentionable Sin árið 1983 þar sem hún fjallar um kynferðislegt ofbeldi frá sjónarhóli guðfræði, siðfræði og sálgæslu. Markmið bókarinnar var að rjúfa þögnina um kynferðislegt ofbeldi innan kristinna kirkna og leitast við að þjálfa presta og annað starfsfólk kirkjunnar í að styðja og reisa upp fórnarlömb kynferðisofbeldis. Rúmlega tuttugu árum síðar, 2005, kom svo út bókin Sexual Violence. The Sin Revisited þar sem Fortune tekur upp þráðinn að nýju og endurskoðar og endurmetur stöðu þessa málaflokks innan kristinna kirkna í ljósi þeirrar reynslu sem hún hefur öðlast gegnum áratuga starf á sviðinu.

deila á facebook