Könnuðu mataræði Íslendinga

Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala - háskólasjúkrahús kynnti í upphafi vikunnar fyrstu niðurstöður nýrrar könnunar á mataræði landsmanna sem unnin var í samstarfi við embætti landlæknis og Matvælastofnun.

Um er að ræða umfangsmikla könnun sem náði til fólks á aldrinum 18 til 80 ára. Sams konar könnun fór síðast fram árið 2002 á vegum Manneldisráðs en frá þeim tíma hefur margt breyst í lífsháttum og aðstæðum fólks, nýjar matreiðsluaðferðir hafa þróast og nýjar og breyttar fæðutegundir hafa rutt sér til rúms.

Fyrir hönd Rannsóknastofunnar komu þær Ingibjörg Gunnarsdóttir, Inga Þórsdóttir og Laufey Steingrímsdóttir, prófessorar við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, að könnuninni ásamt Hrund Valgeirsdóttir, MS-nema í næringarfræði við skólann.

Meistaraverkefni Hrundar fólst í að vinna að skýrslu með helstu niðurstöðum landskönnunarinnar en þar naut hún leiðsagnar Ingibjargar og Laufeyjar. Hrund flytur í dag, fimmtudaginn 26. janúar, erindi  um aðferðafræði könnunarinnar í stofu 105 á Háskólatorgi. Erindið hefst kl. 15.

Niðurstöður könnunarinnar má nálgast hér.

deila á facebook