Skip to main content
20. apríl 2015

Kjörsókn í rektorskjöri kl. 13

Rafræn kosning til rektors Háskóla Íslands stendur nú yfir. Kosningin hófst  kl. 9.00 í morgun og lýkur kl. 18.00. Kl. 13.00 höfðu ríflega 33% atkvæðisbærra tekið þátt í kosningunni en nánari sundurliðum eftir þátttöku í hópum kjósenda má sjá hér að neðan.

Samsetning kjörskrár
Fjöldi KK KVK
14.345 5.089 9.256
Kosningaþátttaka kl. 13:00
Fjöldi á kjörskrá KK kosið KVK kosið Samtals kosið Kjörsókn
Á kjörskrá 14.345
  Þar af starfsmenn með háskólapróf 1.268 415 473 888 70,03%
  Þar af aðrir starfsmenn 218 49 80 129 59,17%
  Þar af nemendur 12.859 1.296 2.488 3.784 29,43%
Kjörsókn samtals 4.801 33,47%

Tveir eru í kjöri, þau Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands.

Leiðbeiningar um rafræna kosningu: Á heimasíðu háskólans www.hi.is og í Uglu er vefborði merktur:  „Kosningar til rektors árið 2015. Smelltu hér til að greiða þitt atkvæði.“ Með því að smella á borðann er farið beint á kosningasíðu. Kjósendur verða að nota aðgangs- og lykilorð sín að Uglu til að svæðið opnist. 

Tölvuver og aðstoð við rafræna kosningu: Tölvuver 204 á Háskólatorgi er frátekið sérstaklega fyrir kjördag. Þar verður starfsmaður frá Reiknistofnun háskólans til staðar og veitir aðstoð ef tæknileg vandamál koma upp. 

Að auki er Tölvuþjónustan á Háskólatorgi opin frá kl. 8.00-16.00, sími: 525-4222 vefsíða: http://rhi.hi.is/tolvuthjonusta_rhi