Kínverskur listahópur í Háskólabíói

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós við Háskóla Íslands býður til nýarshátíðar á morgun, sunnudaginn 5. febrúar, í samvinnu við Guangxi-háskóla í Suður-Kína. Þar verðu sýnd kínversk dans-, söng- og bardagalist. Fullt var út úr dyrum á sömu hátíð í fyrra.

23 manna listahópur frá Guangxi-háskóla er staddur hér á landi og í tilefni þess að kínverska nýárið er gengið í garð er boðið til tveggja klukkustundar sýningar þar sem gestir geta kynnst fjölbreyttri kínverskri list. Hópurinn mun flytja tíu dansatriði, fjögur söngatriði og tvö kung-fu atriði. Hvert atriði hefur sitt sérkenni hvað varðar uppruna, útfærslu og merkingu en atriðin tengjast sérstaklega þeim fjölmörgu þjóðarbrotum sem finna má í Kína. Þess má geta að hópurinn flytur einnig lag Bjarkar Guðmundsdóttur „Oceania“ sem hún flutti á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Aþenu árið 2004.

Á sama tíma í fyrra efndi Konfúsíusarstofnunin til  nýárshátíðar þar sem 40 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Alþýðulýðveldis Kína var fagnað. Þá var boðið upp á glæsilega kung-fu sýningu sem fór fram fyrir fullu húsi.

Sýningin á morgun, 5. febrúar, verður í stóra sal Háskólabíós og hefst kl. 16. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

deila á facebook