Kandídat með ágætiseinkunn frá Hagfræðideild

 

Kristrún Mjöll Frostadóttir hlaut ágætiseinkunn í hagfræði frá Hagfræðideild Háskóla Íslands við brautskráningu Háskóla Íslands sem fram fór laugardaginn 11. júní síðastliðinn. Kristrún Mjöll brautskráðist með einkunnina 9,10.

Kristrún Mjöll brautskráðist með B.Sc. í hagfræði og lokaverkefni hennar ber nafnið Spornað við útflæði fjármagns. Virkuðu íslensku gjaldeyrishöftin?

Kennarar og starfsfólk Hagfræðideildar óskar Kristrúnu Mjöll innilega til hamingju með frábæran árangur.

 

 

Þórólfur Matthíasson deildarforseti Hagfræðideildar og Ólafur Þ. Harðarson forseti Félagsvísindasviðs

Þórólfur Matthíasson deildarforseti Hagfræðideildar og Ólafur Þ. Harðarson forseti Félagsvísindasviðs við brautskráningu Háskóla Íslands.

deila á facebook