Japönsk ræðukeppni

Sendiráð Japans, í samvinnu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands og Japan Foundation, mun standa fyrir árlegri japanskri ræðukeppni í áttunda sinn. Keppnin verður haldin þann 10. september frá kl. 13:00 í Odda 101, Háskóla Íslands.

Þáttakendur keppninnar verða flestir námsmenn á háskólastigi. Keppnin er opin öllum japönskumælandi einstaklingum sem treysta sér til að halda stutta ræðu á japönsku.  Þátttakendum verður raðað niður í viðeigandi flokka af aðstandendum keppninnar.

Ætlast er til að keppendur flytji 3-5 mínútna frumsamda ræðu um viðeigandi efni að eigin vali. Ræðurnar verða dæmdar eftir innihaldi, málfræði, framburði og flutningi.

Til að skrá sig í keppnina, er áhugasömum vinsamlegast bent á að senda tölvupóst til Sendiráðs Japans á Íslandi, á póstfangið japan@itn.is, til að fá sent umsóknareyðublað.  Útfylltri umsókn skal svo skilað aftur til sendiráðsins eigi síðar en 2. september.

Sigurvegarar í hverjum flokki fá verðlaun tengd Japan sem veitt eru af Japan Foundation.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Sendiráði Japans með tölvupósti á japan@itn.is eða í síma 510 8600.

deila á facebook