Jafnréttisdagar í HÍ í þriðja sinn

Fræðileg umfjöllun og fjölbreyttir listviðburðir einkenna Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands sem standa yfir 13.-27. október. Þetta er þriðja árið í röð sem efnt er til Jafnréttisdaga í skólanum.

„Hugmyndin með Jafnréttisdögum er að þeir hjálpi til við að skapa umræðu um jafnréttismál og við að gera þau sýnileg innan skólans sem utan. Á Jafnréttisdögum gefst fólki tækifæri á að kynnast því starfi og þeim hugmyndum sem hafa verið að gerjast í jafnréttismálum í háskólasamfélaginu,“ segir Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands.

Hann segir að boðið verði upp á fjölbreytt úrval af viðburðum, fyrirlestrum, umræðum og annars konar viðburðum. „Jafnréttisdögum er einnig ætlað að vekja athygli á mikilvægi jafnréttismála og á þeim mörgu víddum jafnréttis sem þarf að hafa í huga,“ segir hann en bendir á að markmiðið sé að efla samstarf milli aðila sem starfa að jafnréttismálum innan skólans.

Ýmsir listviðburðir á Jafnréttisdögum

Sem fyrr er fræðileg umfjöllun um jafnréttismál í fyrirrúmi en í ár er lögð aukin áhersla á fjölbreytta dagskrá, ekki síst listviðburði. Jafnréttisdagar í ár eru því m.a. í samstarfi við Nýlistasafnið, Endemi - tímarit um samtímalist íslenskra kvenna og framandverkaflokkinn Kviss Búmm Bang. Þannig mun Kviss Búmm Bang sýna verkið „Svo eðlilegur náungi“ á Háskólatorgi og hljóðverkssýningin „Endemis óhljóð“ verður einnig flutt þar. 

Dagskránni lýkur fimmtudaginn 27. október með lokahófi í Tjarnarbíói þar sem fram koma Hildur Knútsdóttir, Óttar M. Norðfjörð og listahópurinn Kviss Búmm Bang sem mun binda endahnútinn á verk sitt „Svo eðlilegur náungi“.

Dagskrá Jafnréttisdaga í heild og frekari upplýsingar má finna á www.jafnretti.hi.is. Á síðunni www.facebook.com/jafnrettisdagar er einnig hægt að fylgjast með því sem er á seyði.

Ítarlegt viðtal við Arnar Gíslason um Jafnfréttisdaga má nálgast á afmælisvef Háskóla Íslands.

deila á facebook