Íslenska kosningarannsóknin opnuð

Opnað hefur verið fyrir aðgang að Íslensku kosningarannsókninni frá 1991 til 2007 á vef Félagsvísindasviðs Háskóla íslands. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, hefur staðið fyrir Íslensku kosningarannsókninni frá upphafi. Hún var fyrst framkvæmd í kjölfar kosninga til Alþingis árið 1983 og hefur rannsóknin verið endurtekin eftir hverjar Alþingiskosningar síðan þá.

Íslenska kosningarannsóknin er viðamikil rannsókn þar sem lagðar eru fyrir spurningar um kosninga- og stjórnmálahegðun íslenskra kjósenda. Meðal rannsóknarefna eru til dæmis kosningahegðun, afstaða kjósenda til stjórnmálaflokka, afstaða til lýðræðis, hvað kjósendur telja vera mikilvægustu verkefnin á vettvangi stjórnmála, þátttöku þeirra í prókjörum og margvísleg önnur málefni á vettvangi stjórnmála.

Spurningalistar hvers árs eru birtir, ásamt kóðunarbók, upplýsingum um framkvæmd og gögnin í SPSS og Excel skrám.

Íslenska kosningarannsóknin er hluti af Nordic Electoral Democracy (NED) sem er norrænt samstarf um lýðræði og kosningar; Comparative Studies of Electoral Systems (CSES) (www.cses.org) og True European Voter (TEV) (www.true-european-voter.eu) sem eru hvoru tveggja alþjóðalegt samstarf um kosningarannsóknir.

Sjá nánar um  Íslensku kosningarannsóknina á vef Félagsvísindastofnunar.

deila á facebook