Skip to main content
23. janúar 2015

Inntökupróf í Lagadeild og Hjúkrunarfræðideild

""

Inntökupróf verða haldin í Lagadeild og Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands laugardaginn 21. mars 2015, kl. 10.00.  Prófað verður í Háskóla Íslands. Annað inntökupróf, sem auglýst verður sérstaklega, verður haldið 12. júní 2015.

Deildirnar tvær verða með sama inntökupróf, sem nefnt hefur verið Aðgangspróf fyrir háskólastig eða A-próf, og verður opnað fyrir skráningu í þau fyrir miðjan febrúar um leið og opnaður verður upplýsingavefur um prófin. Skráningin verður auglýst sérstaklega.

Við ákvörðun um inntöku hafa deildirnar tvær hins vegar ólík viðmið en lesa má nánar um þau í auglýsingu þeirra um prófið.

Auglýsing Lagadeildar vegna inntökuprófs

Auglýsing Hjúkrunarfræðideildar vegna inntökuprófs.
 

Nemendur í lögfræði og hjúkrunarfræði. Samsett mynd.