Skip to main content
23. janúar 2015

Inntökupróf í Hjúkrunarfræðideild

Inntökupróf í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands verður haldið laugardaginn 21. mars 2015, kl. 10.00. Prófað verður í Háskóla Íslands. Annað inntökupróf, sem auglýst verður sérstaklega, verður haldið 12. júní 2015.

Opnað verður fyrir skráningu í inntökuprófið fyrir miðjan febrúar og verður skráningin auglýst sérstaklega.

Til þess að þreyta inntökuprófið þurfa umsækjendur ekki að hafa lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú), eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla.

Til að hefja nám við Hjúkrunarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) til inngöngu í Hjúkrunarfræðideild. 

Nemendur sem hyggjast hefja nám í Hjúkrunarfræðideild skrá sig til náms við deildina í samræmi við almennar reglur Háskóla Íslands þegar opnað verður fyrir skráningu í vor.

Í inntökuprófinu, sem er Aðgangspróf fyrir háskólastig (A-próf), er prófað í eftirtöldum fimm þáttum: upplýsinganotkun, málfærni, lesskilningi, ensku og stærðum og reiknanleika.

Við ákvörðun um inntöku í BS-nám við Hjúkrunarfræðideild gildir frammistaða á inntökuprófinu 70% en meðaleinkunn úr kjarnagreinunum íslensku, ensku og stærðfræði í námi til stúdentsprófs 30% og munu þeir 100 nemendur sem bestum árangri ná öðlast rétt til náms við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á haustmisseri 2015.

Reykjavík, 23. janúar 2015

Helga Jónsdóttir
forseti Hjúkrunarfræðideildar

Opnað verður fyrir skráningu í inntökupróf í hjúkrunarfræði um miðjan febrúar.