18. september 2015
Innsetningarathöfn Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur
Innsetningarathöfn Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur, prófessors í hagfræði, fór fram í Öskju mánudaginn 21. september sl. Athöfnin hófst með stuttu yfirliti yfir helstu störf Tinnu Laufeyjar en svo tók hún við og flutti erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum.
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans. Haldið verður upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestrum á Félagsvísindasviði frá og með árinu 2015.