Ingunn Hansdóttir ráðin í starf lektors í klínískri sálfræði við Sálfræðideild

Ingunn Hansdóttir hefur verið ráðin í starf lektors í klínískri sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands frá 1. apríl 2011.

Ingunn lauk BA-prófi í sálfræði við Háskóla Íslands 1990, MA- prófi í klínískri sálfræði frá San Diego State University 1993 og doktorsgráðu  í klínískri sálfræði frá San Diego State University og University of California, San Diego 2003.

Ingunn hefur víðtæka reynslu sem klínískur sálfræðingur og rannsakandi. Hún hefur rekið eigin stofu frá 2003, var sálfræðingur á Geðdeild Landspítalans 2003-2005 og sálfræðingur og stjórnandi klínískra rannsókna  við SÁÁ frá 2005.

Ingunn hefur verið stundakennari við Sálfræðideild frá 2004.

Sálfræðideild býður Ingunni velkomna til starfa.

 

 

deila á facebook