Skip to main content
17. nóvember 2015

Ingjaldssjóður styrkir viðskiptafræði- og tónlistarnema

""

Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands. Sjóðurinn ber heitið Ingjaldssjóður og er stofnaður til minningar um Ingjald Hannibalsson, prófessor við Viðskiptafræðideild skólans. Ingjaldur, sem lést fyrir rúmu ári, arfleiddi háskólann að öllum eigum sínum. Stofnfé sjóðsins er sjötíu milljónir króna.

Samkvæmt fyrirmælum sem sett voru fram í erfðaskrá Ingjalds skal sjóðurinn styrkja efnilega íslenska námsmenn við Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis í rekstrarstjórnun eða alþjóðlegum viðskiptum eða nemendur í tónlist.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði stofnskrá Ingjaldssjóðs við hátíðlega athöfn á Litla torgi í dag, á fæðingardegi Ingjalds. Rektor fer með yfirumsjón sjóðsins en þriggja manna stjórn skipa þau Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við Viðskiptafræðideild sem jafnframt er formaður stjórnar, Karólína Eiríksdóttir tónskáld og Þórður Sverrisson viðskiptafræðingur. Stjórn sjóðsins er skipuð til þriggja ára í senn.

Ingjaldur Hannibalsson fæddist 17. nóvember 1951. Hann var sonur Hólmfríðar Ingjaldsdóttur kennara og Hannibals Valdimarssonar ráðherra. Ingjaldur lauk stúdentsprófi frá MR 1971, prófi í eðlisfræði og stærðfræði frá Háskóla Íslands 1974, M.Sc.-prófi 1975 og doktorsprófi 1978 í iðnaðarverkfræði frá Ohio State University. Ingjaldur starfaði á áttunda áratugnum sem stundakennari við MR og sem aðstoðarkennari og við rannsóknir meðan á dvöl hans við Ohio State University stóð. Hann varð deildarstjóri tæknideildar Félags íslenskra iðnrekenda þegar hann kom heim úr námi. 

Árið 1978 hóf Ingjaldur stundakennslu við Háskóla Íslands og varð fastráðinn dósent árið 1982, lengst af í hlutastarfi. Á níunda áratugnum sinnti hann öðrum störfum og var m.a. forstjóri Iðntæknistofnunar, forstjóri Álafoss og framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands. Árið 1993 kom hann í fullt starf við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og varð prófessor við skólann árið 1997. Ingjaldur sinnti mörgum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina innan skólans, m.a. sem skorarformaður og deildarforseti Viðskipta- og hagfræðideildar, síðar Viðskiptafræðideildar. Hann var formaður fjármálanefndar háskólans, framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs og sinnti þar margvíslegum nefndarstörfum. Ingjaldur sat einnig í stjórnum fyrirtækja og stofnana, í ráðgjafanefndum og faglegum dómnefndum.

Ingjaldur var heimshornaflakkari og þegar hann lést hafði hann nýlokið því markmiði að heimsækja öll 193 þátttökulönd Sameinuðu þjóðanna. Það verkefni tók 49 ár en síðustu 63 löndin heimsótti hann í 10 heimsreisum sem hann skipulagði á árunum 2005-2014. Ingjaldur lést 27. október 2014.

Við athöfnina á Litla torgi söng Kvennakór Háskóla Íslands undir stjórn Margrétar Bóasdóttur við undirleik Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara, en hún lék á flygil sem Ingjaldur átti og stendur nú á Litla torgi.  

Styrktarsjóðir á borð við Ingjaldssjóð eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Ingjaldssjóður er í umsjá og vörslu Styrktarsjóða Háskóla Íslands og fellur undir sjóði sem lúta yfirstjórn Háskóla Íslands. Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk.

Þórður Sverrisson viðskiptafræðingur, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands, Karólína Eiríksdóttir tónskáld og Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við Viðskiptafræðideild.
Þórður Sverrisson viðskiptafræðingur, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands, Karólína Eiríksdóttir tónskáld og Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við Viðskiptafræðideild.