Öndvegisfyrirlesari stjórnmálafræðideildar á 100 ára afmæli Háskóla Íslands, Dr. Gerry Stoker, heldur námskeið við Stjórnmálafræðideild sem ber yfirskriftina: Hvernig virkar stjórnmálastarfsemi og hvernig gæti hún virkað enn betur? Námskeiðið hefst mánudaginn 5. september og stendur í tvær vikur. Gerry Stoker er einn þekktasti stjórnmálafræðingur Evrópu á sviði lýðræðis, stjórnmálaflokka og borgaravirkni. Hann er prófessor í stjórnmálafræði við University of Southampton og höfundur eða ritstjóri á þriðja tugs bóka um stjórnmál. Í bókinni „Why politics matters“, sem bresku stjórnmálafræðisamtökin völdu bók ársins 2006, færði hann rök fyrir því að vonbrigði margra með lýðræðisleg stjórnmál stöfuðu af því að þau byggi á málamiðlunum milli ólíkra hagsmuna og leiði til oft niðurstaðna sem oft virðast óskýrar of flóknar.
Námskeiðið er ætlað BA nemum í stjórnmálafræði, sem lokið hafa 120 einingum, meistaranemum stjórnmálafræðideildar og nemendum annarra deilda sem lokið hafa tilskyldum einingafjölda eða eru á meistarastigi. Um er að ræða 6 eininga námskeið haldið samþjappað í tvær vikur 5. – 15. september. Námskeiðið byggir á daglegum fyrirlestrum og umræðutímum í tvær vikur. Námsmat verður í formi verkefna sem verða unnin í framhaldi af námskeiðinu undir leiðsögn dr.nema.
Hvernig virkar stjórnmálastarfsemi og hvernig gæti hún virkað enn betur?
How Politics Works (and could be made to work better)
„A key feature of many democracies is that while citizens respect the idea of democracy they are disenchanted with the practice of politics that delivers it. Economic, social, financial and ecological challenges bring this gap between idea and reality into sharp relief. This series of lectures first explores why many citizens do not appear to like the practice of politics. Then examines in a more general way some of the underlying features of how politics works in democracies. Finally it considers if social science has anything to offer it terms of understanding the conditions that might support and deliver a better politics.“ (Gerry Stoker)
