GAMMA veitti Verðlaun Skúla Fógeta í fyrsta sinn
Í tilefni af 300 ára afmæli Skúla Magnússonar Fógeta þann 11. desember 2011 ákvað GAMMA að stofna til verðlauna sem afhent verða árlega fyrir bestu meistararitgerð á sviði fjármála og efnahagsmála á árinu 2011.
Fjölmargar vandaðar og góðar ritgerðir bárust í ritgerðarsamkeppnina. Niðurstaða dómnefndar undir forystu Dr. Ásgeirs Jónssonar efnahagsráðgjafa GAMMA var að tvær ritgerðir myndu skipta með sér fyrstu verðlaunum fyrir árið 2011. Hrafnhildur Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir meistararitgerð í Viðskiptafræði og Garðar Hólm Kjartansson fyrir meistararitgerð í Fjármálaverkfræði.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Gamma.
