Lið Grunnskóla Hornafjarðar, Hornsílin, stóð uppi sem sigurverari í LEGO-hönnunarkeppni grunnskólabarna, First Lego League, sem fram fór á Háskólatorgi í dag. Liðið atti kappi við átta lið frá grunnskólum víða af landinu og hafði betur. Það verður því fulltrúi Íslands á Evrópumóti First Lego League í Þýsklandi á næsta ári.
Alls voru hátt í 100 krakkar í níu liðum frá jafnmörgum skólum skráðir til leiks og voru þau á aldrinum 10-15 ára. Keppni hófst snemma í morgun þegar þátttakendur glímdu við fyrstu þrautina af fimm í keppninni. Þar höfðu keppendur smíðað vélmenni úr tölvustýrðu LEGO-i sem er forritað til að leysa tiltekna þraut. Önnur þrautin snerist um vísindalega rannsókn á ákveðnu efni. Í þetta sinn snerist verkefnið um fæðuöryggi (e. food factor) og áttu þátttakendur að flytja tiltekna vöru frá einum stað til annars á sem hagkvæmastan hátt.
Í þriðja lagi héldu keppendur ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina og í fjórða lagi fluttu þeir frumsamið skemmtiatriði. Í síðustu þrautinni áttu liðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt í fyrstu þrautinni en þar reyndi á þekkingu þátttakenda á eigin búnaði.
Þegar upp var staðið sigruðu Hornsílin frá Höfn samanlagt og hlutu einnig fern verðlaun til viðbótar, fyrir bestu lausn í þrautabraut, fyrir bestu lausn í hönnun á vélmenni og forritun, bestu dagbókina og bestu liðsheildina. Hópinn skipa tíu nemendur úr 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar og nutu þau leiðsagnar liðsstjórans Eiríks Hanssonar, kennara við skólann.
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands hélt utan um keppnina en bakhjarlar hennar eru Nýherji, Verkfræðingafélag Íslands, Samtök iðnaðarins og Matís.
