Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi keppni sem tekið er eftir, jafnt innan háskólasamfélagsins sem utan. Keppnin hefur jafnan verið sýnd á RÚV og hefur það aukið hróður hennar enn frekar.
Í fyrra var nýtt fyrirkomulag kynnt til sögunnar og brugðið frá því hefðbundna sniði þar sem eitt tæki leysti eina þraut í hverri viðureign. Þessi breyting þótti mikilvæg til að koma í veg fyrir ákveðna stöðnun í keppninni. Keppnin í ár verður með útsláttarfyrirkomulagi þar sem tvö tæki keppa í hverri viðureign. Tækin byrja hvort á sínum enda brautarinnar og keppast við að koma flaggi sínu á miðpunkt brautarinnar. Keppnin reynir því bæði á nákvæmni og hraða.
Tíu lið hafa skráð sig til leiks og er búist við hörkuspennandi keppni sem hefst sem fyrr segir kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Til mikils er að vinna fyrir keppendur því sigurvegarinn hlýtur 400 þúsund krónur í verðlaun frá Marel. Þá veitir Nýherji, nýr samstarfsaðili keppninnar, sérstök verðlaun fyrir bestu og frumlegustu hönnun í keppninni.
Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðu hennar.
Hönnunarkeppni verkfræðinema í dag
