Fimmta úthlutun úr Hrafnkelssjóði fór fram í síðustu viku en þá afhenti Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður sjóðsstjórnar, Yrsu Þöll Gylfadóttur 500 þúsund króna styrk til sameiginlegs doktorsnáms í almennri bókmenntafræði við Sorbonne-háskóla í París og Háskóla Íslands. Yrsa Þöll hefur áður lokið BA í bókmenntafræði frá Sorbonne-háskóla í París og MA í frönskum fræðum frá Háskóla Íslands en hún var fyrst nemenda við Háskóla Íslands til að ljúka meistaranámi í frönsku.
Yrsa Þöll kveðst ávallt hafa haft mikinn áhuga á frönskum bókmenntum, og frá því hún lauk meistaranámi hefur hana langað að sérhæfa sig enn frekar í frönskum 19. aldar bókmenntum og sérkennum þeirra. Nú hefur hún hafið rannsóknarvinnu fyrir doktorsnám sitt af fullum krafti og ber lokaritgerð hennar sem stendur titilinn Írónía og sjálfsvísun aldarlokanna: Frá A rebours (1884) til Le journal d’une femme de chambre (1900). Í ritgerðinni hyggst Yrsa Þöll rannsaka hið íróníska og sjálfsvísandi sjónarhorn franskra bókmennta á 19. öldinni með tilliti til menningarlegs og vísindalegs umhverfis þeirra. Með ritgerðinni telur Yrsa sig geta velt upp nýstárlegu sjónarhorni á rótgróin fræði og stuðlað að nýjum skilningi á tengslum hinna þriggja meginþátta rannsóknarinnar; íróníu, sjálfsvísunar og menningarlegs umhverfis.
Hrafnkelssjóður var stofnaður 1930 í minningu Hrafnkels Einarssonar sem var fæddur 13. ágúst 1905. Hrafnkell lauk námi í hagfræði frá háskólanum í Vínarborg og var að undirbúa doktorsverkefni sitt um fiskveiðar á Íslandi og útflutning fiskafurða er hann lést í nóvember 1927. Foreldrar hans stofnuðu sjóðinn í minningu Hrafnkels og var fyrst úthlutað úr honum árið 2005. Skilyrði fyrir styrk úr sjóðnum er að umsækjandi hafi tekið íslenskt stúdentspróf en hyggi síðan á nám erlendis, annað hvort á meistarastigi eða til doktorsgráðu.
Hlaut styrk úr Hrafnkelssjóði
