Hlaut Nýsköpunarverðlaun forsetans

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Verkefni Vilhjálms var eitt sex verkefna sem tilnefnd voru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands en markmið verðlaunanna er að heiðra námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Þess má geta að nemendur eða kennarar við Háskóla Íslands komu að fjórum verkefnanna sem tilnefnd voru. 

Vilhjálmur vann verkefni sitt í fyrrasumar fyrir tilstyrk Nýsköpunarsjóðs námsmanna og voru leiðbeinendur hans Vilmundur Guðnason, prófessor við Læknadeild og forstöðulæknir Hjartaverndar, og Thor Aspelund, dósent við Læknadeild og starfsmaður Hjartaverndar.

Vilhjálmur er í viðtali í Tímariti Háskóla Íslands 2012 sem kemur út á fimmtudaginn. Þar lýsir hann þessu forvitnilega verkefni. „Með rannsókninni er lagður grunnur að líkani sem reiknar út hættu á kransæðasjúkdómi hjá fólki á aldrinum 65 til 85 ára út frá gefnum áhættuþáttum,“ segir Vilhjálmur og bendir á að áhættureiknar fyrir fólk yngra en 65 ára hafi áður verið notaðir.

Í áhættureikninum sem Vilhjálmur hefur hannað er notast við gögn úr öldrunarrannsókn Hjartaverndar og Vilhjálmur er ekki í vafa um að áhættureiknirinn verði öflugt tól til að gera greiningu og meðferð á kransæðasjúkdómi markvissari en áður. „Með því að tefja hjartaáfall um nokkur ár mætti auka lífsgæði aldraðra og létta byrði af heilbrigðiskerfinu. Kransæðasjúkdómar eru ein helsta orsök heilsubrests hjá öldruðum og kostnaður við lyf og þjónustu sem þeim fylgja er mikill,“ bendir Vilhjálmur á í Tímariti Háskóla Íslands sem kemur út á fimmtudag.

deila á facebook