Hópur viðskiptafræðinema undir forystu formanns Mágusar, Steinars Atla Skarphéðinssonar, tóku á móti heimsókn japanskra nemenda frá hinum virta Waseda viðskiptaháskóla í Japan.
Nemendurnir, sem eru hér á myndinni ásamt íslensku gestgjöfunum, eru á Íslandi í námsferð ásamt kennara sínum, prófessor Yasuhiko Tanigawa, en hann áformar að koma til Íslands aftur á næsta ári í sínu rannsóknaleyfi.
Atli Bjarnason viðskiptafræðinemi flutti erindi um íslenska fjármálahrunið, en það er viðfangsefni Japananna í ferðinni. Þess má geta að um þessar mundir auglýsir sendiráð Japan á Íslandi árlega styrki (MEXT) til íslenskra háskólanema sem hyggja á nám í Japan.
