Skip to main content
24. september 2015

Heimsókn frá Kvennaskólanum

Um 60 nemendur á þriðja ári frá Kvennaskólanum í Reykjavík heimsóttu Félagsvísindasvið Háskóla Íslands fimmtudaginn 24. september.  Alls kynntu sex deildir Félagsvísindasviðs starfsemi sína og buðu upp á kaffi og meðlæti.

Í áfanganum Náms- og starfsval í Kvennaskólanum er unnið að því að nemendur séu vel undirbúnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa eftir að Kvennaskólanum lýkur. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á upplýstan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá óþrjótandi möguleika sem í boði eru í háskólanámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði.

Kennarar eru Linda Björk Einarsdóttir, Ágústa Georgsdóttir og Sigríður María Tómasdóttir.

Sjá myndir á flickr hér.

Um 60 nemendur á þriðja ári frá Kvennaskólanum í Reykjavík heimsóttu Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Um 60 nemendur á þriðja ári frá Kvennaskólanum í Reykjavík heimsóttu Félagsvísindasvið Háskóla Íslands