Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e Félags- og mannvísindadeild, Félagsráðgjafardeild, Hagfræðideild, Lagadeild, Stjórnmálafræðideild og Viðskiptafræðideild, verða á annarri hæð Háskólatorgs og veita m.a. upplýsingar um það fjölbreytta grunn- og framhaldsnám sem finna má þar.
Þá stendur Ökonomia, félag hagfræðinema, fyrir hagfræðitilraunum á torginu fyrir gesti og gangandi. Tilraunin snýst um nýtingu sameiginlegra auðlinda og árangur ólíkra aðferða við nýtingu þeirra. Tilraunin fer þannig fram að þátttakendur veiða baunir úr dalli með misstórum ausum og kostnaður fer eftir stærð ausunnar. „Greitt“ er fyrir hverja veiðiferð. Baunirnar virka sem gjaldmiðill. Öllum er velkomnið að taka þátt.
Á vegum Félagsvísindasviðs verður einnig hljómsveitin Einbreið brú en hana skipa nemendur og kennarar í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild. Hljómsveitin mun ferðast um háskólasvæðið og leika þjóðlega tónlist fyrir gesti og gangandi.
Alls verða um 400 námsleiðir við Háskóla Íslands kynntar á Háskóladaginn. Auk Félagsvísindasviðs munu fulltrúar Menntavísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs kynna starfsemi sína og námsleiðir á Háskólatorgi. Þar að auki verður opið í Aðalbyggingu, þar sem Hugvísindasvið verður með fjölbreytta dagskrá og námskynningu, og Öskju, þar sem deildir Verkfræði- og náttúruvísindasviðs kynna námið og starfsemi með ólíkum hætti.
