Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hefur gefið verkfræðideildum Háskóla Íslands vindlakassa og bréfahníf til varðveislu. Munirnir voru í eigu föður hennar, Finnboga Rúts Þorvaldssonar, fyrrverandi prófessors. Ólafur Pétur Pálsson, deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar tók við gjöfunum fyrir hönd skólans.
Vigdís afhenti vindlakassann og bréfahnífinn við styrkúthlutun úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents, bróður Vigdísar, sem fram fór 21. desember 2011. Á þessu ári var úthlutað úr sjóðnum í 42. sinn en styrkþegi í ár er Guðmundur Freyr Aðalsteinsson, nemandi í vélaverkfræði.
Faðir Vigdísar, Finnbogi Rútur Þorvaldsson (1891-1973) var hafnarverkfræðingur og síðar prófessor í verkfræði við Háskóla Íslands. Útskorinn vindlakassa hlaut hann að gjöf frá nemendum sínum en bréfahnífurinn var gjöf til hans frá samstarfsfólki.
Gjafir frá frú Vigdísi
