Skip to main content
28. ágúst 2015

Gervibarkaígræðsla ekki vísindalegt misferli

Stjórnendur Karólínsku stofnunarinnar hafa komist að þeirri niðurstöðu að dr.  Paolo Macchiarini, fyrrverandi gistiprófessor við stofnunina, hafi ekki gerst sekur um vísindalegt misferli í tengslum við aðgerð þar sem plastbarki var græddur í mann. Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum við Háskóla Íslands, var meðal þeirra sem komu að aðgerðinni og var meðhöfundur vísindagreinar um málið sem birtist í hinu virta tímariti Lancet.

Aðgerðin sem um ræðir vakti mikla athygli árið 2011 en í henni var plastbarki baðaður stofnfrumum græddur í Erítreumanninn Andemariam T. Beyene sem var á þeim tíma nemandi við Háskóla Íslands og glímdi við banvænt krabbamein í hálsi. Tómas, sem var læknir Beyenes, tók þátt í aðgerðinni sem fram fór á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.

Beyene lést snemma árs 2014.

Um mitt ár 2014 lögðu fjórir læknar við Karólíska sjúkrahúsið fram kvörtun á hendur dr. Macchiarini og sökuðu hann um vísindalegt misferli í tengslum við aðgerðina og birtingu vísindaniðurstaðna tengda henni. Í hönd fór fram ítarleg rannsókn innan Karólínsku stofnunarinnar undir forystu Anders Hamsten, rektors stofnunarinnar, þar sem Macchiarini og samstarfsmönnum, þar á meðal Tómasi, gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og leggja fram gögn í málinu.

Að lokinni ítarlegri rannsókn komst Hamsten að þeirri niðurstöðu að Macchiarini hefði ekki gerst sekur um vísindalegt misferli né heldur aðrir sem að vísindagreinum komu. Tekið er fram í skýrslunni hversu mikilvæg gögn Tómasar og Óskars Einarssonar læknis, sem einnig kom að málinu, voru til að hrekja þær röngu fullyrðingar sem ákæran byggðist á og einnig að meðferð sjúklingsins hafi verið fagmannleg af hendi íslensku læknanna, bæði fyrir og eftir aðgerðina.

Frétt Karólínsku stofnunarinnar um málið

Mynd af Tómasi Guðbjartssyni
Mynd af Tómasi Guðbjartssyni