„Ég mun segja frá aðdraganda þess að fyrsta fangelsið var reist hér á síðari hluta 18. aldar og frá því hverjir voru í fangelsi, hvers vegna og ástandi fangelsanna,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild. Hann leiðir göngu um miðbæinn sem ber yfirskriftina „Tugthúsmeistarinn, strípibúllur og fyrsti dómsalurinn“ á morgun, laugardaginn 12. nóvember kl. 14. Þetta er síðasta gangan á árinu í samstarfi Háskóla Íslands við Ferðafélag Íslands í tilefni af aldarafmæli háskólans.
„Efnislega mun ég líka koma inn á kráarmenninguna, sem er ansi ung hérlendis miðað við aðrar þjóðir, enda voru búllurnar og landsmenn strípaðar af bjór langt fram eftir 20. öldinni,“ segir Helgi en tekur þó fram að eftir lögleiðingu bjórsins hafi meira líf færst í leikinn. „Í kringum aldamótin færðist jafnvel enn meira líf í suma staðina með berholda kvenfólki til sýnis og dansiðkunar sem flutt var hingað í hundraðatali þegar mest var - aðeins farið í umfangið og starfsemi staðanna og þróunina síðan,“ segir Helgi í samtali við afmælisvef Háskóla Íslands.
Gangan hefst kl. 14:00 við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu sem einu sinni var notað sem fangageymsla. Gengið verður um miðbæinn framhjá sögufrægum öldurhúsum og endað í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg þar sem fyrsti dómsalurinn er til húsa. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund og er öllum opin.
Ítarlegra viðtal við Helga um gönguna má nálgast á afmælisvef Háskóla Íslands.
